Oft er mikil veðurblíða sem fylgir þegar fer að hausta og kólna í veðri. Loftið er tærara en á sumrin og birtuskilyrðin geta orðið einkar dulúðug og töfrandi, ekki síst þegar sól lækkar á lofti og tunglið fer að láta sjá sig. Erfitt getur reynst fyrir áhugaljósmyndara að fanga þessa töfra á mynd, en hér getur að líta skemmtilega mynd sem Anders Hansen tók að kvöldi til þar sem hluti af Heklusetrinu á Leirubakka í forgrunni ásamt Heklu eru böðuð í kvöldsólinni, en máninn gægist upp fyrir öxlina á Litlu Heklu.
